top of page
Lagfæring á örum_2x.png

Lagfæringar
á örum

Tryggingastofnun tekur þátt í greiðslu vegna lagfæringa á örum. 

Hvers vegna að lagfæra ör?

Ör eftir slys, sjúkdóma eða aðgerðir geta orðið mikil lýti sem hafa neikvæð andleg áhrif á þá einstaklinga sem örin bera. Oft er hægt að lagfæra ör, þannig að þau verða minna áberandi en þau hverfa aldrei alveg.

Hvernig fer aðgerðin fram?

Þegar ör er fjarlægt fer það eftir eðli, stærð og staðsetningu örsins hvernig það er gert. Stundum er hægt að skera gamla örið burtu, laga undirlagið og sauma saman á ný.  Stundum þarf að breyta legu örsins, gera svokallaða Z-plastik, eða nota aðlægan vef til að hjálpa til við að loka skurðinum sem myndast þegar örið er fjarlægt.

 

Undirbúningur

  • Við mælum með að sleppa lýsi og omega 3 fitusýrum í viku fyrir aðgerð. Einnig að sleppa bólgueyðandi verkjalyfjum í a.m.k 5 daga fyrir aðgerð, en þessi lyf eru blóðþynnandi.
     

  • Fara í sturtu um morguninn, sleppa rakakremi. Ef örið er í andliti skal sleppa andlitsfarða.
     

  • Aðgerðina er yfirleitt hægt að gera í staðdeyfingu og þarf þá sjúklingur ekki að vera fastandi.
     

  • Mikilvægt er að fara í góða sturtu heima kvöldið fyrir aðgerð eða um morguninn, ekki nota krem, rakakrem né aðrar snyrti eða förðunarvörur.

 

Bataferli eftir aðgerð

Venjulega eru mjög litlir verkir eftir svona aðgerð en hugsanlega þarf að nota verkjalyf í 1-2 daga á eftir.

Eins og eftir allar aðrar aðgerðir áttu að slaka á og hafa hægt um þig á eftir til að minnka blæðingahættu og líkur á bólgum.

Stundum eru settir saumar sem eyðast en ef settir eru saumar sem þarf að taka þá fer það eftir staðsetningu hversu lengi þeir eru látnir vera.

  • Í andliti, saumar teknir eftir u.þ.b. 1 viku
     

  • Á búk, saumar teknir eftir u.þ.b. 2 vikur
     

  • Á útlim, saumataka eftir u.þ.b. 2 vikur

Þú mátt fara í sturtu eftir tvo daga. Hafðu brúna plásturinn á þar til hann dettur sjálfur af eða þar til saumatakan er. Hvíti plásturinn sem er ofan á brúna má fara þegar þú ferð í sturtu.

Þú mátt fara í sund, bað, heitan pott eftir 3-4 vikur eða þegar sárið er að öllu leyti gróið og skorpan dottin af sárinu. En það á við þegar saumað er með saum sem eyðist.

Ef notað er saum sem er tekinn máttu fara í sund, heita potta eða bað að lokinni saumatöku og sárið er að öllu leiti gróið og skorpan af sári dottin af.

Flestir komast til vinnu daginn eftir aðgerð, fer þó eftir umfangi aðgerðar.

Þú skalt hafa samband ef sárið bólgnar mikið, sárabarmar verða rauðir, hiti og auknir verkir verða.

Til að ná sem bestum árangri og að örið verði minnst sýnilegt er mælt með að nota límbandsplástur á örið í allt að 6 mánuði.

Það heitir Micropore framleitt af 3M og fæst í apótekum. Verja þarf örið í allt að 12 mánuði fyrir sólinni eftir aðgerð eða þegar örið er orðið hvítt.

bottom of page