top of page
Brjóstaminnkun_2x.png

Brjóstaminnkun

Út til hliðanna, þar sem örið endar, myndast stundum smá húðfelling. Þetta jafnar sig oftast, en þarf einstaka sinnum  að lagfæra eftir á með smá aðgerð í staðdeyfingu. Þetta skoðum við hálfu ári eftir aðgerð.

Hvers vegna brjóstaminnkun?

Stór brjóst geta valdið miklum óþægindum. Meðal annars geta þau valdið verk í baki og hnakka sem oft leiðir til spennuhöfuðverkjar.

 

Einnig geta þau valdið  verkjum í efri hluta baks og öxlum.

Undirbúningur fyrir aðgerð

  • Við mælum með því að sleppa lýsi og/eða omega 3 fitusýrur í viku fyrir aðgerð. Bólgueyðandi verkjalyfjumskal sleppa í a.m.k 5 daga fyrir aðgerð, því þessi lyf eru blóðþynnandi.
     

  • Fasta frá miðnætti aðgerðardags.
     

  • Farðu í sturtu að morgni aðgerðardags en slepptu rakakremum á líkamann á eftir.
     

  • Komdu í þægilegum fötum og skóm sem auðvelt er að smeygja sér í og úr.
     

  • Fáðu einhvern til að sækja þig og fylgja þér heim eftir aðgerð því verkjalyfin hafa áhrif á akstursgetu.

 

Algengar spurningar

  • Fæ ég áberandi ör? Við brjóstaminnkun myndast alltaf ör i kringum geirvörturnar, niður frá geirvörtu og undir brjóstin en það tekur örið hálft til eitt ár að verða mjúkt og ljóst. Fólk myndar mismunandi ör en þú mátt reikna með að örin þín verði svipuð og önnur ör á líkama þínum. Ef örin verða þykk má alltaf laga það eftir á.
     

  • Minnkar tilfinningin í brjóstunum? Oft minnkar tilfinningin í geirvörtu, sérstaklega fyrstu mánuðina en stundum varanlega.
     

  • Get ég gefið brjóst eftir aðgerðina? Barnshafandi konur eiga að láta kvensjúkdómalækni sinn vita ef þær hafa farið í brjóstaminnkun en um helmingur kvenna getur mjólkað eftir þessa aðgerð.

 

Hvernig fer aðgerðin fram?

Fyrir aðgerð talar þú við lýtalæknirinn hann skipuleggur aðgerðina og teiknar á brjóstin. Þá eru ljósmyndir teknar til að bera saman við árangur aðgerðarinnar seinna meir.

 

Aðgerðin er gerð í svæfingu og tekur um tvo klukkutíma. Brjóstið er minnkað og geirvartan flutt upp í eðlilega hæð. Allur brjóstvefur sem er tekinn er settur í formalín og sendur í rannsókn.

 

Bataferlið

  • Sund, heitir pottar, bað og gufa er í lagi eftir 3-4 vikur. Svo framalega sem öll sár eru gróin.
     

  • Þú mátt fara í ræktina eftir 6 vikur.
     

  • Flestir eru komnir til vinnu eftir 2-3 vikur.
     

  • Fyrstu vikurnar er brjóstið svolítið bólgið og hart en það lagast að mestu á nokkrum vikum. Það tekur þó lengri tíma að losna við alla bólgu.
     

  • Til að ná sem bestum árangri eftir aðgerðina áttu að nota stuðnings brjósthaldara í að minnsta kosti þrjár vikur, bæði dag og nótt.

 

Við mælum með að þú notir brúnan bréfplástur frá 3M yfir skurðina í nokkrar vikur eftir aðgerðina. Þú þarft að verja örin fyrir sólarljósi í 6-12 mánuði eftir aðgerð eða þar til örið er orðið hvítt.

Þegar heim er komið þá þarftu að taka þvi rólega og ekki lyfta þungu. Mikil áreynsla eykur hættu á blæðingu en mesta hættan á henni er fyrstu 6-12 klst eftir aðgerð. Ef brjóstið bólgnar skyndilega upp eftir að heim er komið áttu að hafa samband.

Þú kemur í endurkomu eftir eina viku. Þá tökum við umbúðir af. Þær eru óhreyfðar þar til. Eftir það máttu fara í sturtu. Forðast skal þó að þurrka fast yfir aðgerðarsvæðið. Næst er svo endurkoma eftir 2-3 vikur og svo 6 mánuði

  • Sund, heitir pottar, bað og gufa er í lagi eftir 3-4 vikur. Svo framalega sem öll sár eru gróin.
     

  • Þú mátt fara í ræktina eftir 6 vikur
     

  • Flestar eru komnar til vinnu eftir 2-3 vikur.
     

Fyrstu vikurnar er brjóstið svolítið bólgið og hart en það lagast að mestu á nokkrum vikum. Það tekur þó lengri tíma að losna við alla bólgu.

Til að ná sem bestum árangri eftir aðgerðina áttu að nota stuðnings brjósthaldara í að minnsta kosti þrjár vikur, bæði dag og nótt.

Við mælum með að þú notir brúnan bréfplástur frá 3M yfir skurðina í nokkrar vikur eftir aðgerðina. Þú þarft að verja örin fyrir sólarljósi í 6-12 mánuði eftir aðgerð eða þar til örið er orðið hvítt.

Mesta hætta á sýkingu er á fyrstu 1-2 vikunum. Ef brjóstið verður skyndilega aumt, roði myndast í kringum skurðinn, líkamshiti fer yfir 38.5 (þó er hiti fyrstu 1-2 dagana eðlilegur og stafar af svæfingu) eða bólga eykst, áttu að hafa samband.

Sjaldgæf aukaverkun eftir langa svæfingu eru blóðtappi og lungnabólga. Gott er að koma í stuðningssokkum í aðgerðina, gera fótapumpuæfingar á vöknun og öndunaræfingar.

bottom of page